28.03.2007 16:48:21 / Linda Þorsteins

ný síða !!!

 

Ný síða !!!!

www.123.is/lindath

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 21:45:36 / Linda Þorsteins

ógurlegt djamm :)

ohh helgin að verða búin.. laaangar svo að hafa fleiri daga til að sofa út :(  en það er víst ekki í boði, vinnan kallar á morgun. En það fer að koma páskafrí :P en helgin er búin að vera mjög svo fín, djammað í gær.. ótrúlega gaman !!

Skellti mér á Sálina með Söndru, Birgittu og Bjarkey. Nema hvað að okkur fannst Sálin vera spila svo róleg lög.. seisei ! en við kipptum okkur ekkert upp við það.. þar sem áfengismagnið í blóðinu var á frekar háu stigi hehe :D allavega skemmtum við okkur æðislega vel ! Fórum svo til Óla í "eftirpartýi" þar sem við vorum bara fimm, endaði svo með því að við Sindri Már vorum komin heim um korter í sjö í morgun hehe 8)

en þetta er búin að vera fín helgi barasta. Skrapp með Írisi í ljós á föstudagskvöldið og svo á Kaffi ak með henni og Kötu. Það var nú einn gutti sem var orðin frekar ölvaður um ellefuleytið og ætlaði að versla á barnum bara sjálfur. Sat þar og reyndi að dæla úr bjórdælunni í glasið sitt hehe.. ekki alveg að gera sig :) Við Íris fórum svo nokkra hringi áður en við hittum svo hana Lenu.. en við Lena áttum geggjað gott spjall saman... svona "girls talk" það var alveg snilld !

en eitthvað er um afmæli í ættinni núna.. alveg þrír dagar í röð ! Nonni bróðir pabba var 45 ára í gær. Stjáni frændi 35 ára í dag og Heiða hans Bjössa frænda 38 ára á morgun :) fór í heljarinnar kökuveislu til Nonna í gær, þar sem maður át oooof mikið ! En samt hellíti fínt :)

Jæja nú held ég að sé best að fara upp í rúm og henda einni dvd í tækið.. þreytan í hámarki hér á bæ !!

.....er að fara henda inn myndum síðan í gær ;)

 

Hvað er fullt nafn mitt?

Hvenær á ég afmæli?

Hvernig hittumst við ?

hvað fannst þér um mig þegar við hittumst?

Hvenær hittumst við seinast?

Hvað er uppáhalds:
-maturinn minn?
-hljómsveitin mín?
-kaffihúsið mitt?
-dagurinn minn?

Hvernig myndir þú lýsa mér í 3 orðum?

Hvar á ég heima?

Höfum við kysst?

erum við góðir vinir?

hef ég treyst þér fyrir leyndarmáli? og þá hvaða leyndarmáli?

á ég :
-dýr?
-barn? 
-ipod?
-bíl? 
-íbúð? 

Hernig eru augun mín á litinn?

Höfum við farið á trúnó? 

Hefuru séð mig gráta?

höfum við farið í ferðalag saman?

höfum við farið á tónleika saman?

veistu við hvað ég vinn?

er ég í skóla?

hvaða líkamshluti á mér er sérstakastur?

hvaða árstími finns mér skemmtilegastur?

ef þú myndir festast með mér á eyðieyju í nokkra daga, hvaða tvo hluti myndir þú taka með?

ef ég myndi hringja í þig og biðja þig um að hitta mig og gera eitthvað, hvar myndum við hittast og hvað myndum við gera?

hvað finnst mér alveg rosalega skemmtilegt að gera? 

ef þú myndir koma mér á óvart hvað myndir þú gera fyrir mig ?

hver er besti vinur minn?

hver er besta vinkona mín? 

hvað er uppáhalds drykkurinn minn?

viltu að ég svari þessu líka fyrir þig ?


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 21:41:20 / Linda Þorsteins

lítið & ómerkilegt

 

 

Lena mín :D

... ég var að hugsa núna í dag ( já það kemur fyrir besta fólk að það hugsi ! )  að eftir 52 daga verð ég tvítug! en ég er búin að vera pæla í því hvað maður eigi nú að gera í tilefni þessa dags... á afmæli á laugardegi.. hell yeah !

en það verður jú þreföld ástæða til að halda þennan dag hátíðlegan.. jújú það er hið árlega Eurovision, sem haldið er með pomp og prakt í Finnlandi þetta árið og mun hann rauðhærði okkar Eiki Hauks standa upp á sviði og keppa fyrir okkur íslendinga. annað er það að þennan dag eru víst kosningar.. en ég nenni nú ekkert að fara í detalis í sambandi við það, það er bara rugl! og svo síðast en ekki síst.. Lindan verður 20 ára !!!!

ég & Birgitta í skóginum í fyrra :D 

maður er búin að vera hugsa hvort það sé stemmari fyrir að leigja bústað kannski yfir þá helgi og partýast :P eða bara hafa það rólegt með nokkrum af vinunum.. eeeeða halda feitt partý hénna heima og senda þau gömlu eitthvað heheh :P hmm.. held að það sé best að skella sér bara út til Hawai og leigja stráhús og dansa húlla húlla bara..  nahh.. jæja maður verður víst að fara plana eitthvað, tíminn líður svo hratt að hann flýgur bara áfram ! uppástungur ?? kommentadálkurinn er laus..  orðið er laust !!!

og hana nú !!!! (sagði hænan og lagðist enn og aftur á bakið )

 

Glitter Graphics


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 16:02:16 / Linda Þorsteins

**Árshátíðarblogg**

Góðann daginn !!!

  • Þá er þessi árlega Árshátíð Norðlenska yfirstaðin. Það er ekki annað hægt að segja nema hún hafi verið frábær ! (eins og alltaf) En þetta byrjaði þannig að um hádegi í gær fórum við niður á Kea. Þar var farið með rútu inn á Hrafnagil til þess að skoða fjós. Þetta var rosa fínt, Sandra sagðist hafa séð mömmu sína en Íris var á ættarmóti :) heheh. Leiðin lá síðan upp á Hamra, þar tók **Björgunarsveitin við okkur. Skipt var í hópa og farið í hinar ýmsu þrautir og leiki. m.a. farið í klettasig, skyndihjálpar ratleik, snjóflóðaleit og fleira. Minn hópur byrjaði á ratleik, Sandra fékk að vera sjúklingurinn og stóð hún sig vel í því ;) hún fékk umbúðir og allskonar dót, lagðist á börur en hló svo bara mest allan tímann hehe... voða glaður sjúklingur, með beinbrot á fæti og hendi og svona :) Eftir það fórum við svo í snjóflóðaleit.

 

 

  • Svo lá okkar leið í sund á Hrafnagil, en ekki fóru allir í sund, þannig að við fengum íþróttahúsið og fórum í allskonar leiki. Allir hoppa inn í rútu svo og drifið sig af stað í bæjinn.. þar sem aðalatriðið var eftir hehe.. *VIKING* fórum við þangað í kynningu og fengum okkur nokkra sopa þar ;) enda orðin sona hress þegar þaðan var farið.

 

 

  • Fórum aftur upp á Kea þar sem hún Lena mín yndislega sótti okkur. Skutluðum Írisi út í sveit og keyrðum svo Binna líka heim. Við hentumst heim í sturtu þar sem við höfðum ekki einu sinni klukkutíma í að taka okkur til. Mín orðin aðeins stressuð á endasprettinum að því ég átti að mæta kl sjö ! kl korter í sjö átti eftir að greiða mér og allan pakkan ! En það hafðist að lokum og náði að drullast niður eftir í næstum tæka tíð :P Við Íris hoppuðum inní blómabúð og náðum í blómin. Voðalega fínt allt saman ;) allir voðalega fínir og sonna.

 

  • Kvöldið hófst svo með fordrykk og læti.. Steinn Ármann var svo veislustjóri hjá okkur og var alveg magnaður :D það var allavega mjög mikið hlegið ! og horfði svo frekar mikið á okkar borð þar sem við sátum upp í horni við sviðið... að því við hlógum soldið mikið :D enda var líka rosalega gaman hjá okkur :D Síðan var sungið og Ingó spilaði undir. "Fínn og Fitulaus" eða annar þeirra í þessu bandi kom og sýndi listir sínar.. rosa gaman að honum. Maturinn var rosa góður og auðvitað allir áfengu drykkirnir :D hehee :P Ingó endaði svo kvöldið með gítarspili og söng. Mín var svo dugleg að draga liðið i það að dansa ! varð fyrst út á gólfið, því það þorði því enginn !! :D En síðan týndist fólkið fljótt og dansaði með okkur.

  • Held að allir hafi skemmt sér rosalega vel.. allavega gerði ég það ;) Eftir að Ingó hætti að spila, dró ég liðið á Kaffi Ak.. en varð síðust þangað af öllu fólkinu... heheen það er önnur saga.. skemmti mér ágætlega þar.. dansaði slatta mikið við Söndru, Birgittu, Binna, Bjössa og Sindra.. voðalega gaman. Hefði betur samt átt að fara heim að sofa bara hehe.. var svo að dreeeepast í fótunum undan skónum :(

hitti svo Bryndísi og Helenu.. þær voru á rúntinum og skutluðu mér heim.. takk æðislega fyrir það eeeelskurnar mínar :o*

svona var nú sagan.. allavega er ekkert sem maður þarf að sjá eftir, ekki eftir þetta kvöld. Náði bara að eyðileggja tvennar sokkabuxur !! geri aðrir betur ! á einu kvöldi hehee.. þannig það endaði með því að þeim var bara sleppt!!

Þetta var bara snilldar árshátíð og verður enn betri næst ;)

er búin að henda inn einhverjum 140 myndum inn á myndasíðuna.. www.picturetrail.com/lindabjork87

Nýjustu fréttirnar eru þær að það er komin nýr fjölskyldumeðlimur á heimilið.. jújú hún heitir "Valli Púlari" (Whirlpool) og er uppþvottavél. Hún kom í hús á föstudaginn og nýtur mikilli vinsælda meðal heimilismanna. Vonandi að hún eigi eftir að standa sig í framtíðinni :)

Páskarnir eru á næsta leiti.. get ekki beðið eftir að þeir renni í hlað. Litla dísin mín hún *Þórdís Katla* ætlar að koma ásamt foreldrum sínum norður yfir heiðar yfir páskahátíðina. Hlakka svo til að knúsast með hana :D:D enda besta barn í heimi :P

Jæja...segjum þetta gott í bili !

kveðja

-Linda-


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 18:42:16 / Linda Þorsteins

11. mars..

jæja þá er þessi helgi senn að enda.... jújú allt tekur enda :S

En við Lenan mín ákváðum í gær eftir miklar pælingar að skella okkur á eitt djamm! en við höfðum ekki djammað síðan 17. Febrúar, þar sem Lena fór ekkert að djamma á afmælinu sínu tókum við eitt ammælis djamm í gær ;)  Þetta djamm hefði átt að enda betur. Við byrjuðum á því að fá okkur nokkra öllara hénna heima og Valdi með okkur. Röltum svo yfir til Gests og drukkum meira þar ;)

úberflipp Söndru Marý ! ein búin að sofa aðeins of mikið :D

...fórum svo niður í Strandgötu og drukkum enn meira þar ! Löbbuðum svo á 1929 þar sem var "froðuball" sem var snilld. Nema hvað þegar við vorum að rölta þangað niðureftir flaug Lena á hausinn fyrir utan Vélsmiðjuna beint á auða stéttina :S En hún fann ekkert svakalega mikið fyrir þessu fyrst en svo fór hún að finna rosalega mikið til :S Við stoppuðum semsagt ekki lengi þanna á ballinu.. ákváðum að rölta yfir á Kaffi Ak og fórum og töluðum við Braga.. mútta kom svo og sótti okkur, þar sem ég lét Lenu koma bara heim með mér.

Mér brá nú frekar þegar ég vaknaði í morgun þar sem hún er með smá sár fyrir ofan og neðan augað en er svona líka þvílíkt bólgin! eins og einhver hafi kýlt hana í augað ! og svo risa sár á hnénu :( en þetta er ekki á hana bætandi.. vonandi að þetta fari að lagast :(

Svona fór um sjóferð þá.. en þetta var samt drullu gaman fyrir utan þessi meiðsli. Skemmtum okkur æðislega ;) en svo bara hálfgerður þynnkudagur í dag.. ohh svo ömurlegt :( en maður er búin að liggja bara upp í rúmi og glápa á imbann og hangsast á netinu.  Svo er bara heljarinnar djamm á Árshátíðinni næstu helgi :D ohh hlakka svo til :D :D Hékk svo yfir litlu systir í vinnunni þar sem ekkert var að gera hjá henni :) Svo er fóturinn ekki orðin góður :( eftir að ég snéri eða missteig mig, er að drepast í fætinum ennþá :( En maður lætur það ekki á sig fá !! :P

jæja nautasteik a.l.a mútta bíður... mmmm :P get ekki beðið eftir að borða :D

ég & Lena mín klárar á djammið ;)

ég & Sandra K. í Vaglaskógi


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 19:50:29 / Linda Þorsteins

yebb yebb !

latur bloggari.. ó já ! jæja kannski mar fari að standa sig betur núna! mútta kauptaði nebblega adsl :D vei vei ! ég ætla bara að bjóða okkur sjálf velkomin í nútímaheiminn :D alveg gríðarlega mikill munur núna :)

nokkuð hefur verið um afmæli í þessum mánuði, en hann Gústi mágur minn átti afmæli núna 3 mars, Amanda litla frænka 4. mars og svo hún Birna mágkona mín í gær þann 6.mars. Til hamingju með það allir ;)

nú fer allt að verða klárt fyrir árshátíðina ! YEahbb ! hlakkar ekkert smá til :D það verður sko geggjað gaman. það eru alveg yfir hundrað manns búnir að skrá sig.. sem er bara snelllld ! Búin að finna mér skó við fína fína kjólinn minn.. Já mín fjárfesti í einu pari af skóm enn fyrir um 6000kr !!! svo er sona eitt og annað eftir.. en það styttist alltaf í þetta... aðeins 10 dagar !! :D

 later...

 

setjum hérna nokkrar myndir síðan af árshátíðinni í fyrra ;)

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 20:56:05 / Linda Þorsteins

komin heim.. komin heim..

home sweet home !

nú er ég búin að flytja allt mitt drasl heim til múttu og pabba :) það er er svosem fínt að vera komin hingað aftur.. alltaf gott að vera á hótel mömmu :D en við tókum búslóðina í gær, þakka þessu góða fólki sem hjálpaði mér fyrir :) mín stóð bara og skipaði fyrir, lét alla hlaupa upp og niður stigana, þar sem gærdagurinn byrjaði eiginlega ekki skemmtilega, sei sei... mér tókst að misstíga mig svona skemmtilega í vinnunni í gær.. en ég fann allavega ekkert mikið fyrir þessu fyrr en seint í gær og í gærkvöldi... gat bara eiginlega ekki gengið. En svo er mar búin að vera eins og hölt hæna í dag, hef ekki getað gert mikið :S Mér hefur greinilega ekki verið ætlað að flytja í gær hehe :) vona bara að þetta lagist.. nenni sko ekki að þurfa vera í fríi í vinnunni út af þessu !

Birna mágkona sendi mér sms... jább hún litla Þórdís mín loksins farin að klappa.. eftir þvílíku æfingabúðirnar ! það er búið að reyna kenna greyjinu að klappa í langan tíma. Loksins gat hún það :D

jæja farin að glápa á imbann.. þar sem maður situr að mestu leiti í sófanum þessa helgina ;)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 19:50:42 / Linda Þorsteins

ekkert spennó...

 

 MeaningfulMeaningfulMeaningful

úfff... jæja ég bara nenni hreinlega ekki að gera neitt !! sérstaklega ekki að fara uppí íbúð og pakka niður, ohh hvað ég hata flutninga !!! það er svooo leiðinlegt að standa í að flytja.. ömurlegt !! en ég allavega flyt heim á "hótel mömmu" í bráð... en við pabbi erum svona í því að fara leita að íbúð handa mér :P ohh það væri nú æði, þó svo að það verði þá flutningar eina ferðina enn.. :S bömmer !

voðalega er árið fljótt að líða.. það er bara að fara koma mars !! mér fannst jólin bara hafa verið í gær :S hmmm skrítið! En þessi mánuður verður örugglega hrikalega skemmtilegur :) Árshátíðin hjá okkur er nebblilega núna 17. mars yeeeahh ! það verður sko stuð!! ef það verður ekki stuð, þá bara búum við það til ! það er alltaf stuð á skemmtunum hjá okkur í Norðlenska.. enda erum við best :D eða ég er best réttara sagt :D:D

er búin að finna kjól og læti víjjj.. keypti mér magnaðan kjól :P aaaha.. en þá er bara að finna skó ! af þessum 25-30 pörum af skóm sem ég á.. er ekkert af þeim sem passar við kjólinn, þannig að líklegast neeeyðist ég til að kaupa eitt par í viðbót :| ætli mútta rasskelli mig ekki bara.. híhíh. Hún sagði að það væri það eina sem hún myndi kvíða fyrir ef ég flytti heim aftur, að það eru allir skórnir mínir ;)

jább! svo var nú blessaða helgin bara ágæt, hitti hana Ellu gellu :) hún kom og var hénna í rúman sólarhring og fórum á búðarráp á laugardaginn, alltaf gaman að því. Og sérstaklega þegar maður á ekki einu sinni krónu með gati !!! æðislegt !! bauð henni svo og Lenu smá rúnt á laugardagskvöldið, sýna henni alla sætu strákana á Akureyris.. sem eru bara eiginlega ekki margir sko 8|

Fór í ammæli til hennar Brynju Rutar á sunnudaginn.. þar sem litla dýrið er orðið 2ja ára ! við Gudda vorum svo sniðugar að kaupa svona gulan fílahoppubelg handa henni.. hahah þetta var algjör snilld, nú getur hún hoppað og skoppað um allt :D

nóg komið af þessu.. Lenan bíður :)

Song LyricsSong LyricsFriends


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 00:56:06 / Linda Þorsteins

..erfiður dagur

 

 

Íslenskur karlmaður lést í eldsvoða í Stokkhólmi aðfaranótt fimmtudags. Hann hét Hlynur Heiðberg Konráðsson og var 33 ára gamall. Hann var starfsmaður hjá Iceland Express og var staddur vegna vinnu sinnar í Svíþjóð. Hann lætur eftir sig 6 ára son á Íslandi og íslenska unnustu búsetta í Danmörku.

Hlynur læstist inni í ruslageymslu veitingastaðar og hringdi í lögreglu þegar eldur kom þar upp. Læsing geymslunnar er þannig að ekki er hægt að opna hana innan frá en ekki er vitað hvers vegna maðurinn var þarna inni. Slökkviliðinu í Stokkhólmi hafði borist tilkynning um mikinn reyk frá veitingastaðnum Engelen í gamla bæ Stokkhólms. Eftir að hafa slökkt eldinn fannst maðurinn látinn. Orsök brunans er ókunn og samkvæmt lögreglunni í Svíþjóð er málið rannsakað sem slys. Morgunblaðið sagði frá þessu.

 


..... föstudagurinn 23 febrúar liðinn.. þetta var frekar erfiður dagur. Fór suður með pabba í gærkvöldi til að fara í jarðaförina hans Hlyns frænda.

..já.. stressið gerði vart við sig í morgun, þar sem þetta var mín önnur jarðaför á ævinni, en þessi var verulega erfið.. þar sem það var ungur maður sem kvaddi okkur að þessu sinni. Það er alltaf erfitt að fara í svona jarðafarir hjá ungu fólki, og líka hjá þeim sem kveðja á svona leiðinlegan hátt.

Ég var eiginlega bara búin að finna það út að þetta yrði ekkert mál.. en samt smávegis stress kom... og þá sérstaklega þegar við mættum í kirkjuna, þegar ég sá aðra hverja manneskju með tárin í augunum eða hálf grátandi, mig langaði mest til að fara hágráta sjálf, en ég reyndi samt að halda þessu og byrgja þetta innan í mér.. og það tókst svona með herkjum.

en þetta var rosalega flott jarðaför, mjög mikið af ungu fólki, söngurinn alveg gríðalega fallegur, enda komu alveg tárin bara við það þegar byrjað var á hverju lagi, þar sem hún Ellen Kristjáns söng og var þetta gríðarlega flott hjá henni.

 

                           

*Hvíldu í friði elsku Hlynur* 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 18:41:22 / Linda Þorsteins

Öskudagur...

 

glitter textglitter textglitter textglitter textglitter textglitter textglitter textglitter text

Jæja þá er hinn árlegi öskudagur runninn upp. Við mikinn fögnuð yngri kynslóðarinnar.. það er nú ekki langt síðan maður var á þessum aldri, (hljómar eins og ég sé orðin eldgömul :D ) vaknaði fyrir allar aldir til að klæða sig upp í búning og fara í allar búðirnar að syngja, þar sem ég bjó í litlu sveitafélagi áttum við mjög auðvelt að fara í allar verslanir og öll fyrirtækin og vorum ekki lengi að því ;) man eftir að eitt árið fór ég ásamt bekkjasystur minni og þræddum ALLA staðina sem hægt var að fara á og söfnuðum 2.5 til 3 kílóum af nammi ! enda áttum við það í margar vikur eftirá !

Glitter Graphic: 08c39b487651dbfd86fcb0949c2499d8.gif

...en ég get nú ekki sagt að þetta hafi ekki verið gaman.. endalus skemmtun bara :) nú er maður alveg hættur þessu.. núna er þetta orðið öfugt, var beðin í morgun um að fara með tveimur starfsfélugum mínum í að gefa pylsur og svala í vinnunni. Þar sem litlu krílin komu og sungu.. sæt og fín í allskonar búningum :) það var bara rosa gaman að fá að gera eitthvað annað, nema hvað að einhvernvegin voru flestir með sama lagið !! er búin að vera með "bjarnastaðar beljurnar" á heilanum ! mig dreymir það örugglega í nótt ! en annars var þetta fínt.

Glitter Graphic: 08c39b487651dbfd86fcb0949c2499d8.gif

...aðeins var djammað um helgina. smávegis partý hjá Lenu, voða gaman, en hún koms því ver og miður ekki með okkur kellunum í bæjinn :( þar sem hnéð á henni var alveg að fara með hana :( alveg ömurlegt !! en við djömmuðum bara í staðinn fyrir hana :D það var rosa stuð! Sandra skutlaði mér og Birgittu upp í Lón áður en við fórum í bæjinn.. því við nenntum ekki strax þangað. enda klukkan bara eitt! skelltum okkur í smá heimsókn til M&P þar sem þau voru á þorrablóti með Landfl Samskip, það var svaka stuð á liðinu þar og allir að knúsa mann og allt fram eftir því !! hitti einn sem var víst frændi minn og hann var að segja mér hvað pabbi minn væri æðislegur og stórkostlegur og bara frábær hehehe.. hann komin aðeins í annað glasið hehe :) en eins og ég hafi ekki vitað það að hann er auðvitað besti pabbi í heiminum :D

Glitter Graphic: 08c39b487651dbfd86fcb0949c2499d8.gif

..en eftir knús og klíp í rassinn ásamt spjalli skutlaði vinnufélagi pabba okkur Birgittu í bæjinn... við fórum á Kaffi Ak og dönsuðum helling !! hitti Unni.. það var æði pæði !! hitti svo Rúnar og Bjössa úr vinnunni og tókum nokkur spor heh :) það var rosa rosa gaman !!!

Glitter Graphic: 08c39b487651dbfd86fcb0949c2499d8.gif

..jæja nú dugar þetta ekki lengur ! melrose place er byrjað ! haaaalelúja :D Svo er bara að fara byrja að pakka niður upp í Hrísó, jább !! Linda litla bara að fara flytja heim í Stapasíðuna aftur.. þannig að það er að losna 3ja herbergja íbúð til leigu.. mæli alveg með henni ;)


glitter textglitter textglitter textglitter textglitter text    Online Status Icon: e61a9b1ba67a39a7284cda38aabf971b.gif


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 18:32:09 / Linda Þorsteins

Lena mín ammæli !!!

 

 

Hún á ammæli í dag

Hún á ammæli í dag

Hún á ammæli hún á afmæli hún Lena mín !!!!

Hún á ammæli í dag  

Hún er tvítug í dag

Hún er tvítug í dag

Hún er tvítug hún Lena mín !!!

Hún er tvítug í dag 


 Já ekki hefur bloggarinn verið að standa sig! þar sem íslensk leti hefur bara hreint átt sér stað :) en bætum nú úr því núna. Við Lenan erum komnar úr borginni.. komum heim á Ak á mánudaginn.. voða gott að koma heim í “sveitina” aftur hehe en vorum barasta ekkert að flýta okkur heim.. kíkkuðum í IKEA aðeins áður en við fórum sem var voða voða gaman :) Komum við hjá ömmu og afa í sveitinni.. sem var bara æðislegt! Hef ekki hitt þau mjög lengi og ekki farið í sveitina í laaaaaaaa.....aaaaangan tíma :(  

Við Íris erum búnar að segja upp íbúðinni.. hún er að fara flytja aftur í sveitina og mín að flytja bara aftur heim til m&p :P þó svo að ég væri alveg til í að vera ekki að flytja aftur heim.. en kannski það sé fínt allavega til að byrja með :) en nú fer maður bara að byrja pakka niður og fara skella einhverjum kössum í geymslu.. nú er bara aðalatriðið að koma öllum stóru hlutunum mínum fyrir einhversstaðar :S nú á ég sófa og borðstofuborð.. spörning hvar við setjum það í geymslu...hhmmm.. en það kemur allt í ljós !!! 

En aðalatriði dagsins er að hún Lena mín er orðinm 20 ára!!!!!!! 

TIL HAMINGJU MEÐ AMMÆLIÐ DÚLLAN MÍN !!! 

Er búin að vera dúleg að hjálpa henni að undirbúa partý í kvöld :D yeeeahhh !!! gerði kórónu og allt handa henni :D þetta verður bara snilld !!! 

Við erum búnar að vera stússast slatta í dag, er búin að borða yfir mig í kökuveislu hjá henni :S fórum í ríkið í dag heheh ÞRISVAR SINNUM !! aldrei var kellan spurð um skilríki... voða gaman :D Jæja er að spá í að hætta þessu... þarf að drulla mér í sturtu áður en ég skutlast með gamla liðið á þorrablót ;) 

Knús kveðjur Linda...

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 23:30:05 / Linda Þorsteins

Krúttípúttí !

MySpace imagesein ég sit og passa.. inní lítilli íbúð.. engin er hér með mér.. nema litla Þórdís..

jæja þá er maður loksins mættur í borg óttans ! en leiðin lá þangað á fimmtudaginn. Þar sem Linda litla tók sér smávegis frí bæði föstudag OG mánudag :) það er voðalega næs ! en ekki hefur maður gert mikið af sér hérna í "stórborginni" fórum í afmæli uppá Kjalarnes, kom þaðan alveg útúr sprunginn ! Síðan lá leiðin heim og við ætluðum að skella okkur á djammið. Hún Thelma beeeeilaði bara !!! kellan sú! en þá vorum við Lenan á báðum áttum hvort við ættum að djamma eða ekki.  Svo bara eins og fólk hefði lesið okkar hugsanir og hún Unnur mín hringdi :D og vantaði skemmtilegan félagsskap og auðvitað hringt í mig :D yeeahh !! þannig aaaað.. við Lenan skelltum okkur til hennar, þar sem hún og systir hennar voru á bjórþambi !

Þegar þangað var komið byrjaði Lindan á sínum fyrsta bjór.. en það var um ellefu eða hálf tólf, honum gúlpað í sig.. annar tók við.. tópaspelinn opnaður... OF margir gúlpasopar af því, okkur var keyrt á Players..Lindan komst ekki inn.. Linda og Lena keyrðar í bæjinn.. röfluðum við fólk... fórum inn á einhvern stað sem ég man ekkert hvað heitir.. þar alveg blekaðar.. Eddi vinur Lenu sótti okkur.. ÖFURÖLVI.. Lindan bara við það að deyja.. stoppuðum fyrir utan hjá Edda... Linda ældi... Linda og Lena komnar heim... SVEFN !!!

ég bara sé eiginlega eftir því pínu að hafa drukkið svona mikið af þessu ógeðis tópasi! enda fékk ég að finna fyrir þessum bévítans timburmönnum í dag ! en þeir eru sem betur fer hættir að parketleggja þessi blessaðir kallar ! loksins :) þeir eru sko ekki mínir bestu vinir skal ég ykkur segja :S

úr einu í annað.. fékk þær óskemmtilegu fréttir á fimmtudagskvöldið að Hlyndur frændi minn hefði dáið :S jámm... hann var kallaður út í vinnu til Svíðþjóðar og brann inni... ekki hafði ég hitt hann svo ég myndi eftir honum en hef heyrt um hann talað allnokkrum sinnum..  og auðvitað tekur maður þetta smávegis inná sig þar sem við vorum frekar náskild :S

en nú situr ég ein að nördast heima hjá Sibba bróður, þar sem Lenan skrapp til að hitta Edda og Þórdís Katla steinsofnuð fyrir um tveimur tímum síðan.. litla krúttið ! Sibbi og Birna fóru í brúðkaup.. og Linda beðin um að passa :D sem er algjört æði... held við hefðum ekki geta fengið betra barn að passa !!  en annars erum við Lena erum búnar að skemmta okkur stórkostlega yfir henni ! alltaf hlæjandi og dansandi :) Litli kjúllinn minn :D

...nema hvað að hundurinn á efri hæðinni er að GERA MIG GEÐVEIKA !!!!!

well well...best að hætta þessu röfli ! ætla fara og tékka á imbanum... hvort það sé eitthvað áhorfs hæft í kassanum !

....later :P

LINDAN & LITLA SOFNADI KJÚLLASTELPAN :)

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 22:36:00 / Linda Þorsteins

algjör snilld !!

I Want Too Break Free... We Will Rock You... One By One...

nú sit ég í stofunni hjá múttu & pabba, hlusta á Þórdísi mína hlæja út í eitt & dansa.. & hinsvegar að horfa á tónleika með Queen á Sirkus. Ef þeir eru ekki bara besta hljómsveit ever þá bara veit ég ekki hvað !! þetta er barasta snilld !! maður fær bara gjörsamlega gæsahúð við að horfa á þetta.. allt fólkið þarna alveg bara í skýjunum yfir þessu & að fíla sig í botn !! ohhhh hvað ég gæfi allt til að fá að vera á tónleikum með þeim !! :D

 

annars er þetta búið að vera leti helgi út í eitt.. fór á föstudaginn & fékk út úr áhugasviðsprófi sem ég tók í desember. Það var eitthvað sem kom á óvart en annað ekki. En út úr þessu komu nokkur störf sem áttu við mig, eða að ég ætti að hugsa út í að læra...

Stoðtækjasmiður

Múrari

Matreiðslumaður

Matráður

Skólaliði

Rafeindavirki

Veggfóðrari

Málari

Lögreglumaður - Vegaeftirlit

Landvörður/ Veiðivörður

Bakari

Hlaðmaður

Landbúnaðarverkamaður

Búfræðingur

Bílstjóri - Flutningar

Vinnuvélastjóri

Starfsmaður við heimaþjónustu

sumt af þessu er sko alls ekki ég !!!! eins og landbúnaðarverkamaður, búfræðingur & veiðivörður.. ekki alveg að sjá það heheh :D

en síðan fór ég að verslast með Írisi.. vorum alveg til kl sex að búðarrápast & vorum orðnar frekar dasaðar eftir það :S

kíkkaði svo á rúntinn á föstudagskvöldið, var að keyra bílinn hennar Lenu & var bara svaka fjör hjá okkur :) skutluðum fullt af liði & sonna.

 

í gær var bara leti allan daginn í gær.. spiluðum við systkinin & makar.. & vorum að letihaugast bara. Síðan skelltum okkur smávegis rúnt í gær ég & Lenan mín.. en það var ekki lengi, var komin snemma í rúmið, bara um 2 eða hálf þrjú leytið. Lindan dúleg :) ekkert djamm eða neitt aðra helgina í röð :D "klöppum fyrir Lindunni sem drakk ekki neitt alla helgina" :D

 

sama sagan í dag.. ekkert gert, bara hálf dösuð & eitthvað þreytt í dag, kíkkaði reyndar með Sibba, Birnu, Guðnýju & Þórdísi í sund, svaka fjör, þar sem sú litla sýndi sko listir sínar við köfun í sundi :) & eftir það tók enn eitt leti stuð!!

jæja er að hætta þessu blessaða rugli & fara drulla mér í bælið mitt.. vinnan bíður í fyrramálið klúkken sjú !!!

Linda...

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 13:53:47 / Linda Þorsteins

laugardagur til lukku !!!!

veskið mitt er fundið !!!!!! það komu krakkar hér í morgun og höfðu fundið veskið mitt fyrir utan Síðu í morgun, þar sem það lá þar undir bíl. Það létti nú ekkert smá yfir manni !! ég var auðvitað svo góð að láta greyjin hafa smávegis fundarlaun. En það besta var að það var allt í veskinu :) ég tók kortin mín öll úr og var það allt frekar blautt. En ég bara nánast titraði þegar ég setti kortin í aftur því ég var svo ánægð :D

var næstum búin að panta nýtt ökuskirteini í gær, rétt slapp inn á sýsló til að fá bráðabirgða heimild. En nú bara slepp ég algjörlega við það að eyða 3.900 krónum í nýtt :D allt alveg æðiiiislegt !!!

annars er eitthvað lítið fréttnæmt... bara vinna vinna.. sofa sofa. Minn elskulegi bróðir er líka hér í bænum, alveg æðiii.. litla dúllan mín alveg yndisleg :) brosir út að eyrum :D:D en svo fer maður suður næstu helgi að passa :P voða voða gaman :)

...Lindan farin...


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 17:11:42 / Linda Þorsteins

Ammæli :D

jæja, nokkur orð hér! á þessum fyrsta degi febrúar mánaðar. Hann er alltaf minnistæður þar sem hún litla systir fæddist þennan dag, fyrir jú 17 árum síðan :D litla gellan bara komin með bílpróf og allt ! mér fannst nú ekki langt síðan hún var bara pínulítil með snuðið í munninum :D

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN GUÐNÝ MÍN!!!!

Copy of scan0012.jpg

en út í allt annað.. ekki bólar á því að finna veskið mitt :( ekkert hefur heyrst eða spurst út í það. Þannig að það er bara týnt og tröllum gefið!! pabbi fór í bankann strax á mánudaginn og var svo góður að panta nýtt debetkort :) svo er bara að fara á Sýsló og panta nýtt ökuskirteini... þá er strax farinn enn blár bréfpeningur :( sem er frekar fúlt :(

nóg um það, ætla halda áfram að horfa á Íslensku strákana okkar í boltanum ;)

lifið heil !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Afm�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1735 dögum
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 mars
Sumarfr�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1687 dögum